* Aðskilnað ríkis og kirkju.
* Styrkir til stjórnmálaflokka verði afnumdir og bækur þeirra opnaðar 20 ár aftur í tímann. Skúffufé ráðherra stöðvað.
* Öllum sendiráðum lokað. Húsakostur í eigu íslenska ríkisins erlendis seldir. Sendiráð starfrækt t.d. í Washington Ameríku og í Brussel Belgíu, leitast til samstarfs við vinaþjóðir á erlendri grundu. Öllum sendiherrum sagt upp. Opið umsóknarferli í dagblöðum óháð fjórflokknum.
* Icesave er pólítískur skandall. Dómstólaleið er leið Íslendinga. Þá og ef dómurinn yrði okkur í óhag, greiðum við íslenskum krónum.
* Varnamálastofnun lokað.
* Styrkir til listamanna afnumdir með öllu.
* Jarðgangnagerð afnumin og boðið út til einkaaðila.
* Til að viðhalda atvinnuleysistyrk þyrfti t.d. 30% vinnuskyldu eftir 3 mánuði fyrir hið obinbera. Vinnuskylda fyrir hið obinbera getur verið til að mynda: skipanir í stjórnir og nefndir, það færist til fólks sem er á atvinnuleysisstyrk, vegna sérstæðra aðstæðna á Íslandi. Pólítískar skipanir í nefndir og stjórnir af hinu obinbera verði hætt. Hér hefði verið hægt að bjóða 200 hæfum atvinnulausum einstaklingum vinnu af hinu obinbera. Skoðið vel listann: Skipanir Össurar Skarphéðinssonar . Allt fólk í mjög góðum störfum með góð laun. Hér hefði verið hægt að taka aðrar pólítískar ákvarðanir og bjóða hæfu atvinnulausu fólki störfin.
* Eftirlitsnefnd vegna hugsanlegrar misnotkunar á félagsmálakerfinu. Sparnaður skili sér að einhverju leyti til að veita hærri greiðslur til öryrkja og aldraða.
* Lífeyrissjóðum fækkað úr 29 í einn.
* Forsetaembættið lagt niður.
* Ríkisiútvarpið einkavætt og selt hæstbjóðenda, ný fjölmiðlalög lögð fyrir þjóðina. Komið verði upp neyðarrás á FM og Stuttbylgju, einnig neyðarstöð Almannavarna í sjónvarpi, rekstrarkostnaður pr. ár innan við 100 millj.kr.
* Háskólum fækkað og þeir skilgreindir betur. Háskolar á Íslandi leitist til að vera í fremstu röð. Reynt verði að fá fleiri erlenda námsmenn til skólagöngu á Íslandi, þar sem skólagjöld verði samkeppnishæf, á við bestu og virtustu háskóla í heimi.
* Ríkisstarfsmönnum fækkað verulega. Öllum framkvæmdastjórum og forstjórum sagt upp á 1.- 3ja ára uppsagnafresti og þeir endurráðnir ef þurfa þykir. Byrjað í útgjaldamestu ríkisfyrirtækjum og t.d. erlendir aðilar fengnir án atbeina íslenskra stjórnmálaflokka til að endurskipuleggja hvert og eitt þeirra. Forstjórum og/eða forsvarsmönnum skilyrt að reka embætti innan fjárlaga.
* Kvótinn komi aftur til fólksins sem byggir landið. Þarf að vega og meta hagkvæmni framkvæmdar fyrir fólkið í landinu.
* Verðtryggingin afnumin. Vextir lækkaðir niður í 1-2%.
* Íslenska krónan hafi viðmið við t.d. Kanadadollar eða Bandaríkjadal og breytist í íslenskan dollar svipað og á Bermuda.
* Seðlabankastjóra sagt upp og nýr bankastjóri ráðinn á faglegum forsendum án afskipta íslenskra stjórnmálaflokka. Einnig nýjir aðilar ráðnir í bankastjórn og án atbeina stjórnmálaflokka.
* Óskastaða 2010: Gefa út til alheimsins að á Íslandi hafi ríkt almenn spilling í gegnum stjórnmálaflokka og tengdra aðila og því fór sem fór. Við Íslendingar höfum lært af reynslunni með því að vísa stjórnmálaflokkum frá og við höfum náð að setja í grjótið þá aðila sem spiluðu með Ísland sem vogunarsjóði. Lýsa yfir greiðslustöðvun þjóðarinnar meðan við Íslendingar erum að koma okkur saman um hvað og hverjum eigi að greiða, (hvernig veið getum greitt) hvað og hvernig sú greiðsla og gjaldmiðill verður notaður til slíks brúks
Íslendingar við eigum að bera virðingu fyrir störfum Lögreglunnar.
Almenna ókurteisi og dólgslæti við lögreglu á ekki að lýða. Á Íslandi þarf einmitt að byrja á einföldu hlutunum, þ.e.a.s. ef við getum ekki borið virðingu fyrir störfum Lögreglunar. Þá getum við ekki borið virðingu fyrir almennum lögum og reglum, því þarf á almennum viðhorfsbreytingum til að hér verði byggt upp réttlátara samfélag. Stöndum saman um fulla virðingu fyrir störfum Lögreglunnar.