Fávitinn er venjulegur íslendingur með konu og börn og í raun og veru bara venjulegur maður. Ástæðan fyrir nafninu fávitinn er sú að alþingismenn og öll stjórnsýsla kemur fram við alla íslendinga eins og við séum fávitar
Fávitinn veltir fyrir sér
Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?
Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?
Fávitinn vaknaði einn morgunn í síðustu viku og var hugsað um hvað hér er að gerast og komst þá að niðurstöðu sem hann er búin að hugsa mikið um síðan.
Kreppan er svarthol sem ferðast milli manna. Því fleiri sem virða svartholið fyrir sér lenda þar. Fólk er skelfingu lostið, það er allt að hrynja, við erum að missa húsin okkar, bílana okkar, vinnuna okkar. Hvað með það segja einhverjir. Jú Jú vissulega er þetta allt ömurlegt og vissulega á þetta ekki að vera svona.
Fávitanum var hugsað til eins vinar síns sem lést úr krabbameini fyrir 2 árum og þeirra orða sem sá ágæti vinur sagði. Peningaleg vandræði eru ekkert þegar þú veist að þú ert að deyja. Ástæðan fyrir því að fávitinn nefnir þetta hér er vegna þess að fávitinn hugsaði hvað hann myndi ráðleggja þjóðinni ef hann væri að deyja.
Ágætu landsmenn, Fávitinn er með lausnina fyrir ykkur. Blásum svartholið í burtu. Blásum dauðann í burtu.
Ísland er land hamingju og kærleiks.
Hér eru nokkur fávitaráð.
Hættum að elska peninga – virðum þá frekar.
Elskum stjórnmálamennina okkar – föðmum þá út á götu – færum þeim blóm og gjafir.
Útrásarvíkingum ber að fagna sem þjóðhetjum (þannig fáum við kannski eitthvað af stolnum peningum til baka. Sérstakur saksóknari virðist ekki ætla að ná þeim).
Hrópum húrra í hvert skipti sem við sjáum bankastjóra eða bankastarfsmenn.
Mætum öll í hádeginu á hverjum degi fyrir framan alþingi og biðjum fyrir forsetanum og ráðherrum landsins. Þetta er hetjur sem leggja líf sitt í hættu á hverjum degi (ég segi svona).
Mætum niður í ráðuneyti og færum ráðherrum okkar vín. Steingrímur Sigfússon gæti t.d verið svona eins og Jeltsín nýja Íslands.
Ágætu landsmenn
Áður en við vitum af erum við orðin hamingjusamasta og kærleiksríkasta þjóð í heimi. Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?
Kveðja (eftir 12 bjóra)
Fávitinn
===========================================================================
Fávitinn er venjulegur íslendingur með konu og börn og í raun og veru bara venjulegur maður. Ástæðan fyrir nafninu fávitinn er sú að alþingismenn og öll stjórnsýsla kemur fram við alla íslendinga eins og við séum fávitar
Fávitinn veltir fyrir sér Steingrími og Jóhönnu þessa vikuna og hvernig þau geti komið þjóðinni út úr kreppunni.
Fávitinn veltir fyrir sér hvernig þau komi til dyrana á morgun og hvað þau munu segja þjóðinni.
Einn daginn segir Steingrímur - þetta er svo erfitt, við erum í svo vondum málum.
Næsta daginn er Steingrímur í svaka góðu skapi og segir – þetta er allt á réttri leið, við erum á hraðri leið í rétta átt. Næsta dag á eftir er allt orðið svo erfitt aftur. Fávitanum finnst Jóhanna vera á svipuðu róli frá degi til dags.
Svo ef einhver gagnrýnir þau þá eru þau mjög dugleg að benda á sjálfstæðisflokkinn og útrásarvíkinga. Allt er öllum að kenna nema þeim. Þetta er svo erfitt – við tókum við svo slæmu búi. Fávitanum minnir að Samfylkinginn hafi verið í ríkisstjórn þegar allt fór til fjandans haustið 2008.
Hvað með það. Fávitanum fyrst þetta vera komið gott – nú sé tími breytinga kominn.
Fávitinnn er með svakalega hugmynd fyrir Steingrím og Jóhönnu.
Við Auglýsum okkur út úr kreppunni.
Af hverju er ekki farið í auglýsingaherð um hvað Ísland er frábært. Allir íslendingar vita hvað hér er að finna. Vandamálið er að mjög fáir jarðabúar vita hvað hér er að finna, nema kannski nokkur þúsund ferðamenn.
Fávitinn hefur gaman að því að horfa á erlendar sjónvarpsstöðvar og horfir oft á CNN. Þar sér fávitinn auglýsingar frá löndum víðs vegar úr heiminum. Allt er svo frábært. Þarna hafa lönd eins og Angóla, Marrokkó, Indland, Malasía, Suður Afríka og fleiri lönd verið jafnvel Nepla.
Fávitinn telur að þarna sé gott skref til að byrja alheimsátakið - Ísland er best í heimi.
Hægt væri að búa til auglýsingar með Steingrím og Jóhönnu í aðalhlutverki.
Þau gætu til dæms boðið fyrirtæki og fjárfesta velkominn til íslands.
Einnig gætu þau fengið hingað ferðamenn og þá er Fávitinn að hugsa um alvöru auglýsingaherferð.
Heimsbúar munu þá kynnast Íslandi á sjónvarpsskjánum heima hjá sér um allan heim.
Áður en við vitum af er Ísland aftur orðir besta land í heimi og allir elska okkur.
Kveðja
Fávitinn
======================================================
Sjóræningjar eða Þjóðræningjar
Fávitinn veltir fyrir sér ummælum Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra í fréttum stöðvar 2.
Árni Páll Árnason vill að böndum sé komið á starfsemi fyrirtækisins Kredia. Hann kallar þessa starfsemi sjóræningjastarfsemi. Hann hlýtur þá að meina að eigendur Kredia séu sjóræningjar. Þetta er að mati Fávitans með ólíkindum.
Fávitinn telur ráðherra þarna vera á mjög gráu ef ekki bara svörtu svæði að segja svona um fyrirtæki sem borgar skatta og skyldur og veitir fólki vinnu.
Síðustu sjóræningjar sem Fávitinn man eftir eru staðsettir við strendur Sómalíu. Þar dugar ekkert minna en herir til að verja fólk og ferðamenn á þeim slóðum fyrir slíkum lýð.
Fávitinn veltir fyrir sér hvort Árni Páll ætli að kalla út Víkingasveitina eða Landhelgisgæsluna til að koma lögum yfir Kredia. Tíminn einn mun leiða það í ljós hvort það verður gert.
Málið er að enginn neyðir fólk til að taka svona lán. Fólk tekur það af fúsum og frjálsum vilja. Gæti verið að það fólk sem vantar svona peninga geri það vegna þess að það fær ekki fyrirgreiðslu annars staðar. Eins og ráðherra ætti að vita er mikil neyð í þjóðfélaginu þessa dagana. Hundruðir manna leita til fjöldskylduhjálparinnar í hverri viku. Þetta veit Árni Páll vel.
Ef að Árni hefur nú rétt fyrir sér um Kredia og það sannast að þeir eru sjóræningjar þá verður varla erfitt að sanna að þingmenn Samfylkingarinnar eru þjóðræningjar.
Hvort skyldi nú vera betra ?
Kveðja
Fávitinn
=============================================================
Fávitinn hugsar um Nostradamus.
Fávitinn er venjulegur íslendingur með konu og börn og í raun og veru bara venjulegur maður. Ástæðan fyrir nafninu fávitinn er sú að alþingismenn og öll stjórnsýsla kemur fram við alla íslendinga eins og við séum fávitar
Fávitinn hugsar um Nostradamus.
Fávitinn reynir eins og flestir Íslend ingar að átta sig á ástandinu á landinu þessa dagana. Í gær horfði fávitinn á sjónvarpsþátt um Nostradamus og kom þá spurning upp í huga fávitans.
Hvað myndi Nostradamus spá um næstu 6 mánuði á Íslandi ?
Fyrstu hugsanir voru
Ísland neitar Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu
Skuldatryggingarálag Íslands fer í 1500 stig
Ríkisstjórnin segir af sér
Boðað verður til kosninga á ný.
Rannsóknarskýrslan kemur út og þjóðin verður í sjokki.
Óeirðir verða á götum miðborgar Reykjavíkur.
25.000 manns mæta á Austurvöll til að mótmæla ástandinu.
Útgöngubann verður sett á í miðbæ Reykjavíkur.
Arion banki tekur yfir Exista
Breskir aðilar eignast Haga.
Jóhanna Sigurðardóttir hættir í stjórnmálum.
Steingrímur Sigfússon verður forsætisráðherra
Davíð Oddson snýr aftur og stofnar nýjan stjórnmálaflokk.
Fólkið rís upp gegn bönkunum og krefst leiðréttinga.
Byrjað verður á Icesave viðræðum á ný.
Hvað eftir á að gerast veit enginn.
Þetta eru klikkaðir tímar
Kveðja, Fávitinn
==============================================================================
Fávitinn spáir í Íslandsbanka
Fávitinn er venjulegur íslendingur með konu og börn og í raun og veru bara venjulegur maður. Ástæðan fyrir nafninu fávitinn er sú að alþingismenn og öll stjórnsýsla kemur fram við alla íslendinga eins og við séum fávitar
Fávitinn veltir fyrir sér fréttum um Íslandsbanka og nýja erlenda stjórnarmenn þar.
Eru loksins komnir aðilar í stjórn banka hér sem eitthvað vit hafa á þessum málum. Fávitinn telur það mikið fagnaðarefni að svo frægir og þekktir bankamenn á heimsmælikvarða vilji koma nálægt jafn illa förnum banka. Alltaf hefur verið talað um að enginn vilji láta bendla sig við íslenskan banka á þessum síðustu og verstu tímum.
Fávitinn veltir fyrir sér hvort aðgerðaráætlun hinna nýju stjórnarmanna sé eftirfarandi:
1. Ný stjórn bankans fer í gegnum eignir bankans og flokkar raunveruleg verðmæti frá hinum óraunverulegu verðmætum.
Raunveruleg verðmæti gætu verið fyrirtæki sem koma nálægt jarðvarmaorku ofl. Fávitanum er í fersku minni auglýsingaherferðir Glitnis frá 2007 þar sem bankinn hafði það hátt á stefnuskrá sinni að vera leiðandi í fjármögnun á verkefnum í endurnýtanlegri orku. Man hann eftir miklum áformum um verkefni á Indlandi í byggingu á jarðhitaorkuverum meðal annars. Einnig horfir fávitinn á samvinnu Íslandsbanka við Geysir Green Energy en yfirleitt er talað um Íslandsbanka sem viðskiptabanka félagsins.
Enex Kína kemur einnig upp í huga fávitans. Þarna geta verið alls kyns einkaleyfi ofl í gangi.
2. Hinir nýju fulltrúar láta taka raunverulegar eignir út úr bankanum eða selja á niðursettu verði.
3. Nýjir eigendur bankans láta einhverja óháða (að fávitans mati háða) aðila endurmeta aðrar eignir bankans upp á nýtt (á mikið hærra verði).
4. Þeir setja bankann á hlutabréfamarkað árið 2011 eða 2012. Hægt verður að fá skattaafslátt vegna fjárfestinga í bankanum. Einnig verður hægt að dreifa greiðslunum á Visa eða Euro á 36 mánuði. Íslendingar verða ánægðir með bankann sinn, svona á þetta að vera.
5. Hinar nýju hetjur selja kjölfestueignarhlut til einhverra ríkra Íslendinga.
6. Allt bullið byrjar upp á nýtt.
Fávitinn sá viðtal við einn stjórnarmann í bankanum og fannst á viðtalinu að manninum væri mikið í hug að bæta stöðu viðskiptavina bankans. Er vonandi alvara á bakvið hann.
Vonandi bjarga þessar erlendu hetjur okkur Íslendingum. Þeir eru allavega fullfærir um það.
Vonandi munu þessir snillingar hjálpa íslendingum að sigra heiminn.
Kveðja
Fávitinn.
=============================================================================
Fávitinn er venjulegur íslendingur með konu og börn og í raun og veru bara venjulegur maður. Ástæðan fyrir nafninu fávitinn er sú að alþingismenn og öll stjórnsýsla kemur fram við alla íslendinga eins og við séum fávitar.
Fávitinn spyr alþingismenn ?
Alþingismenn !
Hvað er að gerast í þessu landi ? Erum við virkilega að keyra beint í hrun 2 ? Hvað með öll fögru loforðin hjá þessum stjórnmálamönnum okkar ? Getur verið að ríkisstjórnin sé í einhverjum allt öðrum heimi ? Það mætti halda það.
Hvenær munum við spyrna frá botninum ? þetta er komið gott !
Rifjum þetta aðeins upp, það lítur út fyrir að þið séuð búin að gleyma þessu.
Það vita allir hvað hrun 1 var.
Bankarnir okkar hrundu
Byggingaiðnaðurinn fór út í veður og vind.
Verkfræðistofur og arkitektastofur hrundu á einni nóttu.
Fasteignasölur fengu lokanaglann í líkistuna.
Allur innflutningur á húsgögnum og fleiri þannig vörum hrundi niður í næstum ekki neitt.
Svo kom sjokkið fyrir almenning
Verðbólga hélt áfram að hækka
Gengi krónunnar hrundi
Fasteignaverð hrundi
Fólk fór að missa vinnuna
Fólk lækkaði í launum
Fólk flúði Ísland
Vöruverð hækkaði.
Skuldir hækkuðu.
Allir töpuðu ofl ofl ofl
Hvað gerðu stjórnvöld, jú þau hækkuðu skattana á fólkið í landinu. Nú er ég ekki sérfræðingur í þessu en mér sýnist það vera úreld stjórnmálafræði að hækka skatta í kreppu. Jú vissulega gæti þetta gengið upp í styttri efnahagslægð en góðir alþingismenn, þetta er kreppa, þetta er kreppa, þetta er alvöru helvítis kreppa. Fólk er að missa allt sitt og þið sitjið þarna eins og vitleysingar og baunið einhverju rugli út í loftið í þingsal.
Hrun 2 er hafið – Nú vitið þig það.,
Síðustu iðnaðarmennirnir eru að flýja land
Önnur hver skrifstofuhæð í landinu er að verða tóm
Starfsmenn opinberra stofnana eru að byrja að missa vinnuna.
Fasteignaverð fer að ná nýjum lægðum
Gengið á eftir að hríðversna, gengisvísitalan fer í 300 (mér er alveg sama hvað hagfræðingar segja en það gerist innan skamms).
Svört vinna er að aukast.
Svik og prettir eru að aukast í landinu okkar.
Fólk er hætt að eiga ofan í sig lengur.
Innbrot og glæpir er að aukast.
Ísland er að verða land atvinnuleysingja og örorkubóta.
Andinn sem ég upplifi þessa dagana í fólki sem ég hitti er uppgjöf. Fólk er að gefast upp. Fólk skammast sín fyrir að hafa kosið þessa ríkisstjórn. Fólk skammast sín fyrir ykkur. Fólk er jafnvel farið að líkja Íslandi við Sovétríkin og nú efast ég um að fólk viti nokkuð hvað það er að bulla þegar það segir slíkt.
Alþingismenn
Þið eru að hækka skatta og flæma íslendinga úr landi. Skammist ykkar alþingismenn og stjórnmálamenn.
Hér er samt nokkur atriði sem flestir heilvita menn eru sammála um og ég veit að þið alþingismenn eruð það líka.
Það á að hækka skatta í þenslu og lækka þá í kreppu.
Það á að hækka vexti í þenslu og lækka þá í kreppu.
Það á hjálpa fólkinu í landinu sem er að missa allt sitt í kreppu.
Það á að setja allar þær framkvæmdir í gang sem hægt er (þig hugsið bara um eitthvað fáranlegt tónlistarhús sem enginn vill og spítala sem þið hafið ekki efni á að reka).
Það á að skapa störf fyrir atvinnulaust fólk á Íslandi, ef það er enginn vinna, þá eiga stjórnvöld að búa til vinnu (það er ekki eins flókið og það lítur út fyrir að vera).
Alþingismenn – hættið þessu helvítis væli og hunskist til vinnu.
Að öðrum kosti getið þið sagt ykkur frá störfum.
Fávitinn er tilbúin til að leiða þetta land út úr þessari kreppu á betri hátt en þið.
Áfram Ísland
Kveðja
Fávitinn