A-   A+
11.7.2010

Handónýtt ríkiskerfi.

Ríkisstjórn Steingríms Joð berst fyrir því að viðhalda gæðingakerfinu sem Samfylking, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur byggðu. Kerfi þeirra sem geta í gegnum pólítíska hjarðhegðun haldið sínum störfum og kjörum eftir hrunið. Störfum sem ríkið ræður yfir.  Það er alveg á hreinu að búið er að skapa hér millistjórnendakerfi sem getur ekki staðið undir sér.

Dæmi:
Knútur Hauksson forstjóri ríkis-fyrirtækisins Heklu er einnig framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands. Fyrir hvort tveggja teljum við að hann þiggi allt að 1.5 milljónir króna á mánuði. Í öllu atvinnuleysinu í dag er störfum og tækifærum ekki jafnt skipt á vegum ríkis. Fullt er að t.d. góðu menntuðu fólki haldið frá því að geta gengið í þessar stöður. 

Í fyrsta lagi ætti að finna nýjan forstjóra hjá Heklu. Knútur var einn stjórnenda Heklu sem rak sig á hausinn. Í öðru lagi þá hefur Knútur það ágætt sem framkvæmdastjóri HSÍ. Í þriðja lagi má búast við því að Knútur sitji í einhverjum stjórnum og nefndum sem hann þiggi auka greiðslur fyrir. Þetta er Nýja Ísland. Þar sem gæðingakerfi fjórflokksins er haldið óbreyttu. Fáir gæðingar sem raka inn tekjur undir styrkri stjórn Jóhönnu og Steingríms.  Frambærilegu og hæfu fólki  er bent á Vinnumálastofnun, það getur aldrei fengið séns á því að ganga í starf forstjóra ríkis-Heklu.  

Annað dæmi:
Á atvinnuleysisskrá eru 17.000 manns, öryrkjar eru orðnir um 17.000 manns, ríkisstarfsmenn eru 55.000, brottfluttir eru 10.000 manns og fjöldinn allur af fólki er farið til náms eingöngu til að geta sagt við sig sjálft, ég er í skóla af því að ég fæ enga vinnu. Vinnubært fólk er uþb. 170.000 manns, af því eru c.a. 95.000 manns sem fyrirtækið Ísland sér fyrir með einum eða öðrum hætti. 

Auðvitað eru 55.000 manns að skila vel til ríkis, en væri ekki þörf að segja upp talsverðum slatta ríkisstarfsmanna? Útaf hverju hafa atvinnurekendur nær eingöngu þurft að segja upp fólki? Á meðan er varla nokkrum sagt upp hjá fyrirtækinu Ísland 2010 ehf. Það eru c.a. 20% þjóðarinnar atvinnulaust og/eða á öryrkjabótum ! Þetta getur ekki gengið hjá þrjúhundruð þúsund manna þjóð í N-Atlantshafi.

Ísland 2010 ehf. er gjaldþrota, vinstri stjórn Steingríms Joð og Jóhönnu er að kaffæra velferðarríkið Ísland og er að koma hér upp aumingjasamfélagi.  Á meðan gefur ríkið á garðana fyrir Gæðingana og hlúir vel að aumingjasamfélaginu. 

Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Samfylkingin eru ábyrg fyrir því að sigla öllu í strand á Íslandi. Þeirra er sökin. Verst er að sjá hversu afvegaleiddur Steingrímur og Vinstri snú snú eru við að reyna að endurreisa fyrirtækið Ísland. Steingrímur mun gera allt til þess að halda völdum á Íslandi. Maðurinn er valdsjúkur.

Fyrirtækið Ísland er á góðri leið með að tappa hinu dugmikla vinnufólki úr landi. Það þýðir að Steingrímur og Jóhanna kunna að þurfa að biðja um fleiri lán. Þannig geta þau rekið fyrirtækið Ísland 2010 áfram.  i.

Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá lokum 19. aldar.

Nýtt Ísland vill stöðva stjórnmálaflokka við stjórn á Íslandi. Þessir flokkar og fólk við stjórn er með öllu óhæft. Við leggjum störf og árangur þeirra s.l. 67 ára á borðin. 

Á Íslandi er verið að reisa of stórt kerfi við. Kerfi þeirra sem vilja fylgja hjarðhegðunaráráttu stjórnmálaflokkanna. 

03 maí 2010  gústi púst  sagði:

Níels hvar ertu?

03 maí 2010  Níels  sagði:

mættur

af hverju styður þjóðin ekki betur við bakið á þessum hetjum

ég segi áfram steingrímur áfram ísland

03 maí 2010  gunni  sagði:

Er ekki liklegt af steingrímur hafi bara fengið styrkina svart og þess vegna ekkert að gefa þetta upp

 
   
 
 

* Reiti verður að fylla út, e-mail eru hvorki birt né notuð
Greinar
H V Í T B Ó K

www.hvitbok.vg Hvítbók, er vefsíða sem eigendur segja upplýsingasíðu um hel...

W A N T E D

WANTED: Sigurdur Einarsson. Have you seen this person? If so.  Pls. contact nearest Police station. This man is WANTED by the...

Ásta Rut Jónasdóttir í Háskólabíó.

Ásta Rut Jónasdóttir varaformaður Vr og varaþingmaður Framsóknarflokksins með þrumu góða ræðu í Háskólabíó, árið 2009. Ásta er kraftmikil kona sem...

Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?

...

Stjörnuryk: Hættum að borga