A-   A+
11.7.2010

Bjarni Ármannsson: "Bankarnir engar svikamyllur"


Með leyfi Hvítbókar birtum við hér með viðtal viðtal við Bjarna Ármannsson fyrrverandi bankastjóra Glitnis banka í maí 2009 af   af www.hvitbok.vg .

Forsendur sendar á Bjarna:

Bjarni geturðu svarað neðangreindum fullyrðingum fræðimanna og það sem hugsanlega gerðist innan í bankakerfinu á Íslandi?

- Veita stjórnum lán til kaupa bréfa í eigin fyrirtækjum - þannig eru hagsmunir þeirra orðnar beintengdar hagsmunum stjórnenda á bónustengdum launum sem miða að skammtímahagnaði og aðfinnslur á ákvörðunum ólíklegri 

2- Greiða endurskoðendum veglega til að draga einnig úr þeirra gagnrýni á ársreikningum

3- Vinna stöðugt í því að eiga góð samskipti við aðila sem stunda regluverk þannig að þeir taki síður föst tök á nauðsynlegum málum
...var þetta raunveruleikinn?  .

  Bjarni svarar :

Varðandi forsendurnar þínar (og ég vil taka fram að ég get ekki svarað fyrir önnur fjármálafyrirtæki eða annan tíma en þann sem ég sinnti hjá þeim fyrirtækjum sem ég starfaði) um hvað þurfi að vera þarna á bak við myndi ég vilja segja eftirfarandi:Ekki ætla ég með nokkru móti að halda því fram að ferill minn 1999-2009 sé mistakalaus.  Ekki frekar en að allt sem þar hafi verið gert hafi verið tóm vitleysa. Varðandi neðangreindar pælingar (kenningar), þá held ég að hvað Íslandsbanka/Glitni varðar, þá standist kenningin ekki skoðun.  Ég vil minna á að útrás bankans í minni tíð gekk fyrst og fremst út á þjónustu við alþjóðlegan sjávarútveg, vistvæna orkuframleiðslu og þjónustustarfsemi við olíuiðnaðinn.  Langstærstu fjárfestingarnar voru í Noregi.  Því miður fóru þær á brunaútsölu í haust.  Sú saga verður sjálfsagt sögð síðar - en bankastarfsemin þar gekk vel og mun halda áfram að gera það undir nýju eignarhaldi.


1.
Það þurfti ekki að fylgjast sérstaklega vel eða náið með íslensku viðskiptalifi til að sjá að ég var stundum uppá kant við þær stjórnir sem ég starfaði undir.  (fleiri en eina og fleiri en tvær) Eða spekúlasjónir fjölmiðla um að nú ætti að reka mig eða ég væri ekki í náðinni o.s.frv.  Það er sjálfsagt hægt að taka til tugi slíkra fjölmiðlatilvitnanna yfir langt tímabil, þannig að ekki hafði ég slíkar stjórnir sem þú ert að vísa til. Lestu spurningu Kristjáns Más Unnarssonar sem fyrstu spurningu fjölmiðils þegar ég hætti í apríllok 2007.  Hver var hún?  Hún var: Varstu rekinn?



2.
Við fórum í útboð á endurskoðendum og kláruðum það að mig minnir 2006 frekar en 2007.  KPMG hafði verið endurskoðandi en PWC var með lægra tilboð og að okkar mati jafn miklum gæðum.  Því tilboði var tekið. Því er ekki eins og það hafi verið byggt upp langtímasamband
með þær ætlanir sem þú rekur.  Auk þess sem þú þarft að muna það að það er aðalfundur sem kýs endurskoðendur.  Ekki stjórnendur.

3. Innri endurskoðun viltu sem stjórnandi hafa sem öflugasta á hverjum tíma.  Þú ert á villigötum með að bankar séu einhverjar svikamyllur.
Bankastarfsemi er atvinnustarfsemi.  Ræddu við innri endurskoðendur bankanna.

4. Varðandi eftirlitsaðila, þá að sjálfsögðu viltu vera í sem bestu sambandi við eftirlitsaðila.  Þeir verða að rækja sitt hlutverk og augljóslega, þegar maður sér fyrirtæki starfa á undanþágu ár eftir ár, þá hristir maður hausinn.  Þegar ég tók við sem formaður Samtaka fjármálafyrirtækja var það eitt af mínum fyrstu verkum að styðja stóraukin framlög til FME.  Að sjálfsögðu. Með stórauknum umsvifum bankanna þurfti stóraukið eftirlit.

Virðingarfyllst,
Bjarni

17 maí 2010  Óskar  sagði:

Bjarni er drengur góður á allt hið besta skilið.

Vonandi að hann fái stól fjármálaráðherra þegar steingrímur hættir í haust.

19 maí 2010  Jón Óskar  sagði:

Yndislegur maður hann Bjarni alveg yndislegur

04 jún. 2010  Bjartur  sagði:

Þegr talað er um Bjarna hefur mér alltaf fundist að verið sé að hengja bakara fyrir smið. Hann er fínasti strákur finnst mér.

04 jún. 2010  Guðmundur  sagði:

Sammala bjartur

þeir sem tala illa um bjarna eru asnar

 
   
 
 

* Reiti verður að fylla út, e-mail eru hvorki birt né notuð
Greinar
H V Í T B Ó K

www.hvitbok.vg Hvítbók, er vefsíða sem eigendur segja upplýsingasíðu um hel...

W A N T E D

WANTED: Sigurdur Einarsson. Have you seen this person? If so.  Pls. contact nearest Police station. This man is WANTED by the...

Ásta Rut Jónasdóttir í Háskólabíó.

Ásta Rut Jónasdóttir varaformaður Vr og varaþingmaður Framsóknarflokksins með þrumu góða ræðu í Háskólabíó, árið 2009. Ásta er kraftmikil kona sem...

Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?

...

Stjörnuryk: Hættum að borga