RÚV er skylt að skera niður um 12% af rekstrarfé af fjárlögum 2011. RÚV þiggur 4.900.000.000 króna árið 2010 í fjárlögum og með auglýsingjatekjum.
Ekki er að sjá að RÚV hafi mikinn áhuga á að skera niður kostnað.
Í HM horni RÚV í dag voru auk stjórnanda þrír álitsgjafar og tveir þulir/lýsendur. Við erum að tala um sex aðila að fjalla um knattspyrnukeppni sem við Íslendingar erum ekki einu sinni þáttakendur í.
Undirritaður skipti yfir á ensku stöðina ITV, þar voru tveir í settinu fyrir utan þá tvo sem lýstu leikjunum eða samtals fjórir aðilar. Englendingar eru með lið í keppninni. Undirritaður hélt að RÚV væri skylt að spara.
Undirritaður hringdi uppá RÚV og spurðist fyrir um hvort allir þessir álitsgjafar í settinu væru á launum hjá RÚV. Það tók tíu mínútur að fá samband við einhverja Kristínu H.
Kristín H. líkaði ekki fyrirspurn undirritaðs og vildi fyrir alla muni vita ástæðu fyrirspurnarinnar. Vildi hún að skrifleg og formleg fyrirspurn yrði send á sig og þá væri fyrst möguleiki á að hún myndi upplýsa undirritaðan um hvort viðkomandi aðilar væru á launum frá ríkisfyirtækinu RÚV.
Undirritaður fékk mikinn áhuga á RÚV í dag og skoðaði m.a. heimasíðu RÚV. Þar var hægt að sjá að það eru "aðeins" 20 starfsmenn í auglýsingadeild RÚV. Starfsmenn eru samtals 358 !

Undirritaður vill koma á framfæri til RÚV góða hugmynd til sparnaðarauka: Fínt að hafa Þorstein Joð í settinu, hann er hnyttinn og veit ýmislegt um knattspyrnu. Fáum í settið "Celebrities" (þ.e.a.s á ísl. Frægðarpersónur): Egill Gillz, Bubbi Morthens, Eyþór Arnalds, Haffi Haff, Simmi og Jói osfrv. Frægðarpersónur vilja nýta hvert einasta tækifæri til að komast í mynd til að spjalla og sérstaklega ef það er frítt , gott dæmi er Bubbi Morthens.
Bullið og ruglið í íslensku ríkisfyrirtækjunum heldur áfram-vandamálið er að við eigum ekki efni á þessu öllu lengur og þjóðarskútan á leið að sökkva í annað sinn á tveimur árum. Ísland er að verð að einu alsherjar ríkisapparati sem viðheldur sjálfu sér á kostnað vinnandi almennings.
Á Íslandi eru uþb. 320.000 íbúar af þeim eru 67.800 ríkisstarfsmenn ! Hugsum okkur Bandaríkin: þar búa c.a. 350.000.000, ef svipað hlutfall væru við störf fyrir ríkið og á Íslandi væru 67.000.000 bandarískra íbúa við störf fyrir ríkið !
(Ath: ofangreindar tölur innihalda ekki starfsmenn þeirra fyrirtækja sem íslenska ríkið hefur yfirtekið).
Áskorun til Steingríms Joð , Jóhönnu Sigurðardóttir og Katrínar Jakobsdóttir:
Fáið Arnþrúði Karlsdóttir útvarpsstjóra Útvarps Sögu til að reka Pál Magnússon og RÚV.
Hægt er að fræðast um stjórn og starfsmenn RÚV neðar á síðunni.
Sveinbjörn Árnason
Áhugamaður um knattspyrnu.
Starfsmenn