Samtökin Nýtt Ísland lýsa yfir stuðningi við Steinunni Valdísi til starfa í bæjarstólastól á Akranesi.
Steinunn Valdís hefur mikla reynslu, er áræðin og kann til verka. Það er von okkar að Steinunn Valdís verði valin úr hópi umsækjenda. Styðjum við bakið á góðri, heiðarlegri, forystukonu til að heilla fyrir Akurnesinga. Í undirbúningi er stofnun Fésbókasíðu með heitinu heiðarlega og framsækna konu sem bæjarstjóra.
Aðeins meira um Steinunni.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
F. í Reykjavík 7. apríl 1965. For.: Óskar Valdemarsson (f. 6. okt. 1917, d. 2. jan. 1998) húsasmiður og Aðalheiður Þorsteinsdóttir (f. 27. júní 1926, d. 13. mars 1978). M. Ólafur Grétar Haraldsson (f. 7. jan. 1965) hönnuður. For.: Haraldur Ólafsson alþm. og Kristrún Auður Ólafsdóttir. Stjúpfaðir Ólafs er Skúli Pálsson. Dóttir: Kristrún Vala (1999).
Stúdentspróf MS 1986. BA-próf í sagnfræði HÍ 1992. Stundaði nám í opinberri s

tjórnsýslu við HÍ 2006-2007.
Starfsmaður launaskrifstofu fjármálaráðuneytisins 1986-1987. Starfaði á skrifstofu Kvenfélagasambands Íslands 1992-1996. Framkvæmdastjóri kvennaheimilisins Hallveigarstaða 1996-1998. Borgarstjóri í Reykjavík 2004-2006.
Formaður félags sagnfræðinema við HÍ 1989-1990. Í Stúdentaráði Háskóla Íslands 1990-1992. Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1991-1992. Í stjórn Félagsstofnunar stúdenta 1992-1994. Í borgarstjórn Reykjavíkur 1994-2007. Í byggingarnefnd Reykjavíkur 1994-1998. Formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur 1994-2002. Í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 1994-1999, formaður 1997-1999. Formaður jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar 1996-1998. Í miðborgarstjórn 1998-2002. Formaður samstarfsnefndar um lögreglumálefni 1998-2002. Í skipulags- og umferðarnefnd Reykjavíkur 1998-2002. Í stjórn Árvekni, verkefnisstjórnar um slysavarnir barna og ungmenna, 1998-2002. Annar varaforseti borgarstjórnar 1998-2002, fyrsti varaforseti 2002-2004. Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur 1998-2004, varaformaður 2002-2004. Í stjórn Lánatryggingasjóðs kvenna 1998-2004. Í borgarráði 1998-2007. Formaður skipulags- og bygginganefndar Reykjavíkur 2002-2004. Í jafnréttisráði 2002-2004. Í samvinnunefnd um svæðisskipulag miðhálendisins 2002-2004. Í dómnefnd um skipulag vegna tónlistar- og ráðstefnuhúss 2002-2004. Formaður borgarstjórnarflokks Reykjavíkurlistans 2002-2004. Í stjórn skipulagssjóðs Reykjavíkur 2002-2006, formaður hennar 2004-2006. Formaður stjórnar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2004-2006. Formaður almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins 2004-2006. Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2002-2007. Í stjórn Landsvirkjunar 2006-2007. Í stjórn Faxaflóahafna 2006-2008. Í framkvæmdaráði Reykjavíkur 2006-2007. Í stjórn Fjölskyldu- og húsdýragarðsins 2006-2008. Í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar 2006-2008. Formaður kvennahreyfingar Samfylkingarinnar síðan 2007. Formaður dómnefndar um byggingu gestastofa í Vatnajökulsþjóðgarði 2008.
Alþm. Reykv. n. 2007-2010 (Samf.).
3. varaforseti Alþingis 2009-2010.
Fjárlaganefnd 2007-2009, samgöngunefnd (form.) 2007-2009, 2009-2010, sérnefnd um stjórnarskrármál 2007 og 2009 (fyrri), félags- og tryggingamálanefnd 2009, allsherjarnefnd (form.) 2009-2010, umhverfisnefnd 2009, viðskiptanefnd 2009-2010.
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2009-2010.