Fávitinn er venjulegur íslendingur með konu og börn og í raun og veru bara venjulegur maður. Ástæðan fyrir nafninu fávitinn er sú að alþingismenn og öll stjórnsýsla kemur fram við alla íslendinga eins og við séum fávitar
Fávitinn veltir fyrir sér
Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?
Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?
Fávitinn vaknaði einn morgunn í síðustu viku og var hugsað um hvað hér er að gerast og komst þá að niðurstöðu sem hann er búin að hugsa mikið um síðan.
Kreppan er svarthol sem ferðast milli manna. Því fleiri sem virða svartholið fyrir sér lenda þar. Fólk er skelfingu lostið, það er allt að hrynja, við erum að missa húsin okkar, bílana okkar, vinnuna okkar. Hvað með það segja einhverjir. Jú Jú vissulega er þetta allt ömurlegt og vissulega á þetta ekki að vera svona.
Fávitanum var hugsað til eins vinar síns sem lést úr krabbameini fyrir 2 árum og þeirra orða sem sá ágæti vinur sagði. Peningaleg vandræði eru ekkert þegar þú veist að þú ert að deyja. Ástæðan fyrir því að fávitinn nefnir þetta hér er vegna þess að fávitinn hugsaði hvað hann myndi ráðleggja þjóðinni ef hann væri að deyja.
Ágætu landsmenn, Fávitinn er með lausnina fyrir ykkur. Blásum svartholið í burtu. Blásum dauðann í burtu.
Ísland er land hamingju og kærleiks.
Hér eru nokkur fávitaráð.
Hættum að elska peninga – virðum þá frekar.
Elskum stjórnmálamennina okkar – föðmum þá út á götu – færum þeim blóm og gjafir.
Útrásarvíkingum ber að fagna sem þjóðhetjum (þannig fáum við kannski eitthvað af stolnum peningum til baka. Sérstakur saksóknari virðist ekki ætla að ná þeim).
Hrópum húrra í hvert skipti sem við sjáum bankastjóra eða bankastarfsmenn.
Mætum öll í hádeginu á hverjum degi fyrir framan alþingi og biðjum fyrir forsetanum og ráðherrum landsins. Þetta er hetjur sem leggja líf sitt í hættu á hverjum degi (ég segi svona).
Mætum niður í ráðuneyti og færum ráðherrum okkar vín. Steingrímur Sigfússon gæti t.d verið svona eins og Jeltsín nýja Íslands.
Ágætu landsmenn
Áður en við vitum af erum við orðin hamingjusamasta og kærleiksríkasta þjóð í heimi. Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?
Kveðja (eftir 12 bjóra)
Fávitinn