A-   A+
20.5.2010

H V Í T B Ó K

www.hvitbok.vg

Hvítbók, er vefsíða sem eigendur segja upplýsingasíðu um helstu gerendur í aðdraganda efnahagshrunsins  á íslandi. Síðan heldur, og mun halda, utan um upplýsingar um þessa gerendur og rannsakendur.


Það er til vitnis um skopskyn eigenda síðunnar að hún skuli vera vistuð á Bresku Jómfrúreyjum. Eyjarnar hafa verið mikið í fréttum á Íslandi, einkum eyjan Tortola, frá því síðastliðið haust. Þar áttu íslensk fjármálafyrirtæki og viðskiptamenn fjölda fyrirtækja sem grunur leikur á að notuð hafi verið sem skattaskjól og til þess að fela fjármuni.

Á síðunni er eftirfarandi yfirlýsing frá eigendum hennar:

Á Íslandi er komið fram eitt stærsta gjaldþrot heimsögunnar. Útrásarvíkingar og bankamenn fóru mikinn í skjóli stjórnmálaflokka og eftirlitsaðila. Eftir situr íslenskur almenningur með skuldaklafa  sem þessir aðilar skilja eftir sig. Að mati eiganda www.hvitbok.vg er íslenska flokkakerfið gerspillt og enn  í örmum ákveðinna útrásarvíkinga og annara uppeldis gæðinga. www.hvitbok.vg vill beina því til íslensk almennings að eina leiðin útúr ógöngum landsins er að á Íslandi myndist samstaða til að hreinsa til og byggja upp Nýtt Ísland án fjórflokksins og jafnvel án aðkomu stjórnmálaflokka vegna sérstæðna aðstæðna. Slíkt verður þó ekki gert með Alþjóða gjaldeyrissjóðnum né fjórflokknum eins og áður kom fram.

Á síðunni er óskað eftir aðstoð lesenda við að halda staðreyndum til haga og við öflun upplýsi. Kíktu inn www.hvitbok.vg 


 
   
 
 

* Reiti verður að fylla út, e-mail eru hvorki birt né notuð
Greinar
H V Í T B Ó K

www.hvitbok.vg Hvítbók, er vefsíða sem eigendur segja upplýsingasíðu um hel...

W A N T E D

WANTED: Sigurdur Einarsson. Have you seen this person? If so.  Pls. contact nearest Police station. This man is WANTED by the...

Ásta Rut Jónasdóttir í Háskólabíó.

Ásta Rut Jónasdóttir varaformaður Vr og varaþingmaður Framsóknarflokksins með þrumu góða ræðu í Háskólabíó, árið 2009. Ásta er kraftmikil kona sem...

Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?

...

Stjörnuryk: Hættum að borga