Heilbrigðismál
* Ísland á að geta boðið uppá besta heilbrigðiskerfi í heimi. Við höfum viljugt og kröftugt starfsfólk með mikla þekkingu ásamt mjög góðum tækjum og húsakosti.
* Gefa þarf út yfirlýsingu um að felld verði niður yfirlýsing Jóhönnu Sigurðardóttir, (forsætisráðherra), um að enginn megi hafa hærri laun en hún sjálf.
* Öryrkjum og öldruðum verði tryggð hærri greiðslur og betri ummönnun á vegum íslenska ríkisins. Komið verði á eftitlits nefnd sem hafi það að markmiði að þeir sem svíkja sig inní félagmálakerfið verði teknir af því.
* Lífeyrissjóðir verði sameinaðir og má áætla árlega sparist c.a. 2. -3. milljarðar kr.
* Lífeyrisskuldbindingar haldist í einum sjóð, þannig útrýmist spilling sem viðgengist hefur innan lífeyrissjóða á Íslandi til hjagsbóta fyrir aðila og gæðinga, jafnt og fyrirtækja þeirra á millum. Hættum að láta þröngan hóp manna reka lífeyrissjóðskerfið sem leynifélög. Þetta eru peningarnir okkar.
* Lífeyrissparnaður þeirra sem falla frá gengur óskertur til maka og eða barna. Hægt væri að miða við aldurstengingu, t.d. 80 ára aldurs.
* Öllum öldruðum verði tryggðar góðar vistarverur og öryggi að lokinni þjónustu við Ísland. Hver og einn á að vera einn í íbúð/herbergi. Nóg er af húsnæði á Íslandi í dag. Virðum réttindi aldraðra. Við eigum jú öll eftir að verða vonandi öldruð.