Hópur á vegum samtakanna Nýtt Ísland fór að heimili Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs Landsbankans, við Vesturbrún í morgun. Í tilkynningu kemur fram að fólkið hugðist bjóða húsið upp. Bankað var að dyrum og svarað í dyrasíma. Meira
Samtökin Nýtt Íslands héldu táknrænt uppboð á Fríkirkjuvegi 11 í Reykjavík í morgun en húsið er í eigu Novators, fjárfestingarfélags Björgólfs Thors Björgólfssonar. Um tveir tugir manna mættu á staðinn en allt fór rólega fram. Meira
Kröfuganga verður farin frá Hlemmi nk. laugardag og er gengið niður á Austurvöll þar sem efnt verður til útifundar og Alþingi götunnar stofnað. Að göngunni standa nokkrir grasrótarhópar, m.a. Hagsmunasamtök heimilanna, Siðbót, Nýtt Ísland, Húmanistafélagið og Aðgerðarhópur háttvirtra öryrkja. Meira
Nýtt Ísland hefur sent frá sér áskorun þar sem skorað er á formann VR og forseta ASÍ að mæta á Austurvöll í dag og taka til máls á ellefta kröfufundi vetrarins. Meira
Samtökin Nýtt Ísland munu á morgun veita nýrri stjórn Íslandsbanka rauða spjaldið. Meira
Samtökin Nýtt Ísland og Hagsmunasamtök heimilanna boða til kröfufundar á Austurvelli nk. laugardag kl. 15. Þetta verður fimmti kröfufundur samtakanna í vetur. Meira
Stjórn Nýs Íslands lýsir í tilkynningu yfir furðu á yfirlýsingum meirihluta stjórnar VR. „Þar gerir verkalýðsfélagið VR atlögu að tjáningarfrelsi, skoðunum og stefnu sem samtökin Nýtt Ísland fara fyrir,“ segir í tilkynningunni. Meira
Fulltrúar sextán lífeyrissjóða innan vébanda Landssamtaka lífeyrissjóða stofnuðu formlega í dag Framtakssjóð Íslands, nýtt fjárfestingarfélag sem ætlað er að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins. Meira
Formaður VR Kristinn Örn Jóhannesson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna áskorunar samtakanna Nýs Íslands, sem skora á hann og formann ASÍ að mæta til kröfufundar á Austurvelli í dag. Segist hann ekki geta tekið mark á samtökunum vegna þeirra markmið sem þau setja fram á vefsíðu sinni. Meira
Nýtt Ísland og Hagsmunasamtök heimilanna hvetja ráðherra í ríkisstjórn Íslands og formenn verkalýðsfélaga til að mæta á áttunda kröfufund samtakanna sem fram fer á Austurvelli á morgun. Óskað er eftir staðfestingu. Berist hún ekki munu samtökin koma við á heimilum þeirra og minna þá á fundinn. Meira
Meirihluti stjórnar VR harmar að nokkrir stjórnarmenn í félaginu tengist samtökunum Nýtt Ísland, sem virðist hafa það á stefnuskrá sinni að leggja niður Alþingi. Samtökin reyni jafnframt að brjóta VR niður. Þetta kemur fram í ályktun frá meirihluta stjórnarinnar. Meira
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir nýtt lánshæfismat alþjóðlega matsfyrirtækisins Standard & Poor's vera mjög sérkennilegt. Á gamlársdag kynnti fyrirtækið að það hefði breytt horfum á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands úr neikvæðum í stöðugar. Meira
Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar í dag kl 15:00 á Austurvelli. Fundarstjóri verður Lúðvík Lúðvíksson, en ræðumenn Ásgerður Jóna Flosadóttir frá Fjölskylduhjálp Íslands, Friðrik Ó. Friðriksson frá Hagsmunasamtökum heimilanna og Ragnar Þór Ingólfsson úr stjórn VR. Meira
Birna Einarsdóttir, bankastjóri ÍslInnlent | mbl | 16.2 | 9:43
Samtökin Nýtt Ísland efna til mótmæla gegn bílalánum fyrir utan höfuðstöðvar Íslandsbanka við Kirkjusand klukkan 12.15 í dag. Bílflautur verða þeyttar í þrjár mínútur. Meira
Talið er að hátt í 800 manns hafi komið á Austurvöll í dag og tekið þátt í tíunda mótmælafundi samtakanna Nýtt Ísland. En í fundarboði samtakanna kom fram að hátt í 45.000 heimili verði komin verulega fjárhagslega erfiðleika fyrir árslok verði ekki gripið til aðgerða. Meira
Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar á Austurvelli í dag kl. 15 í fjórða sinn. Mótmæla á tregðu stjórnvalda og aðgerðarleysi varðandi lánakjör heimilanna, að því er segir í tilkynningu.Meira
Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til fjórða kröfufundar n.k. laugardag 19. des. kl 15:00 á Austurvelli. Segir í tilkynningu að mótmælt verði tregðu stjórnvalda og aðgerðarleysi varðandi lánakjör heimilanna.Meiraandsbanka, hefur afþakkað boð samtakanna Nýtt Ísland um að koma á mótmælafundinn á Austurvelli í dag og halda þar ræðu. Ætla samtökin því að fara að heimili hennar og vekja hana. Meira
Samtökin Nýtt Ísland hafa enn á ný boðað til mótmæla fyrir utan þau fjármögnunarfyrirtæki sem bjóða upp á bílalán. Bíleigendur eru hvattir til að mæta fyrir utan Íslandsbanka Kirkjusandi á hádegi og flauta stanslaust í þrjár mínútur. Þaðan verður ferðinni haldið áfram að næsta fyrirtæki.Meira
Áætlað er að 250 til 300 manns hafi sótt tíunda mótmæla- og kröfufund vetrarins. Samtökin nýtt Íslands standa fyrir mótmælunum. Meira
Um sjö hundruð manns lét ekki bleytuna á Austurvelli á sig fá, og tók þátt í mótmælum sem Nýtt Ísland og Hagsmunasamtök heimilanna stóðu fyrir klukkan þrjú í dag. Meðal þess sem barist er fyrir, er leiðrétting höfuðstóls lána, afnám verðtryggingar og að veð takmarkist við veðandlag. Meira
Nokkur hundruð manns tóku þátt í þriðja kröfufundi Hagsmunasamtaka heimilanna og Nýs Íslands á Austurvelli í dag. Áhersla var lögð á bætt lánskjör fyrir heimilin í landinu. Meira
Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar á Austurvelli kl. 15 í dag. Ræðumenn eru þeir Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Bjarki Steingrímsson, varaformaður VR. Meira
Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland hafa boðað til kröfufundar á Austurvelli á morgun kl 15:00. Fundarstjóri verður Lúðvík Lúðvíksson frá Nýja Íslandi, en ræðumenn þeir Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Bjarki Steingrímsson varaformaður VR. Meira
Nýtt Ísland og Hagsmunasamtök heimilanna segja að aðeins Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra hafi svarað kalli samtakanna um að mæta á kröfufund, sem fram fer á Austurvelli kl. 15 í dag. Í vikunni var skorað á alla ráðherra í ríkisstjórn Íslands að mæta. Samtökin segja að „vakningalest“ sé farin af stað til að vekja ráðherrana. Meira
Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar á laugardag klukkan 15:00 á Austurvelli. Fundarstjóri er Lúðvík Lúðvíksson en ræðumenn dagsins eru Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Bjarki Steingrímsson varaformaður VR. Meira
Gunnar Sigurðsson, einn þeirra sem hefur skipulagt opna borgarafundi hér á landi, hefur sent annað bréf til Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, þar sem hann fer yfir stöðu mála á Íslandi, aðkomu AGS og Icesave. Eins og áður hefur verið greint frá þá bauð Gunnar Strauss-Kahn á borgarafund. Framkvæmdastjórinn afþakkaði fundarboðið í bréfi sem hann birti á vef AGS þar sem fram kom að Meira
Hagsmunasamtök heimilanna boða ásamt samtökunum Nýtt Ísland til útifundar á Austurvelli á laugardag kl. 15 þar sem krafist verður réttlætis og sanngirni í lánakjörum. Segja samtökin, að tilefnið sé augljós tregða stjórnvalda til að bregðast af alvöru við forsendubresti lánasamninga.Meira
www.hvitbok.vg Hvítbók, er vefsíða sem eigendur segja upplýsingasíðu um hel...
WANTED: Sigurdur Einarsson. Have you seen this person? If so. Pls. contact nearest Police station. This man is WANTED by the...
Ásta Rut Jónasdóttir varaformaður Vr og varaþingmaður Framsóknarflokksins með þrumu góða ræðu í Háskólabíó, árið 2009. Ásta er kraftmikil kona sem...
...