A-   A+

Stjórnskipun


* Ráðherrum og öðrum sem kunna að hafa leynt íslensku þjóðinni staðreyndum um  bankahrunið  árið 2007/08 verði dregnir til ábyrgðar. Ráðherrar gangist undir 14. gr. stjórnarskrár Íslands.

* Utanþingsstjórn, starfsstjórn eða þjóðstjórn verði komið á sem fyrst, til hagsbóta fyrir fólkið sem byggir landið í gegnum beint lýðræði.

* Dreifingu og innflutningi fíkniefna og glæpasatarfsemi verði lýst stríð á hendur sjá hér  . Lögin skilgreind betur og harðari refsingar e áður þekkist.    Verkefnið er að útrýma almennri glæpastarfsemi á Íslandi. Erlendum sakamönnum verði vísað úr landi til sinna lögreglu eða umdæmis ríkis síns. Íslenskir afbrotamenn erlendis  leiti réttar síns í samvinnu við íslensk stjórnvöld og þeir vistaðir og dæmdir eftir íslenskum lögum við framsal.

* Fangelsi gerð rammgirtari og fleiri fangelsi byggð. Skylduvinna og ábótakerfi fyrir fanga verði komið upp við afplánun.  Staða fangelsismála.    .

*Gera þarf nýja og bætta stjórnarskrá.

Nýtt Ísland fyrir þá sem byggja landið.


Nýtt Ísland vill:

* Koma heimilum landsins til hjálpar, gera leiðréttingu á lánum landsmanna. Á við bílalán líka.


* Útrásarvíkinum og eigendum og stjórnendur bankanna verði birt sannleiks og sáttanefnd. Eignir þeirra verði skráðar að beiðni yfirvalda og einhverjar þeirra kyrrsettar. 

* Spillinguna burt.

* Gagnsæi við störf og úthlutanir á vegum hins obinbera. Spillinguna burt.

* Rannsókn verði stórefld og margfalt meira fjármagni veitt til að velta öllum steinum við, (margfalt meira fjármagn, það skilar sér tilbaka í formi endurheimtingar á fjármagni í sem komið hefur verið undan).

Stjórnmálaflokkar á Íslandi bera nær enga ábyrgð.
Það er Samfylkingu, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki að þakka að hér á landi hefur verið gerð ákveðin atlaga að því að steypa heilli þjóð i algjöra glötun, vel má vera að það hafi verið framkvæmt af ákveðnu gáleysi og tómlæti. Er  hægt  að draga forsvarsmenn þessara flokka fyrir Landsdóm?  Það er nær óhugsandi vegna samtryggingakerfis stjórnmálaflokkanna. Margir vonuðust eftir því að Vinstri hreyfingin Grænt framboð myndu hér taka til hendinni og ganga í þau verk að hreinsa til, aldeilis ekki, þeir eru engu skárri,  hugsanlega hungraðari í völd en peninga, ólíkt hinum flokkunum þremur sem hafa bæði markmið, völd og peninga, (því til stuðnings má skoða styrkjaveitinga til téðra stjórnmálaflokka).

Því er það nauðsynlegt að við náum að leggja starfsemi  spilltu stjórnmálaflokkanna niður og nýtt upphaf geti hafist. Er það nauðsynlegt að við  Íslendingar þurfum 63 þingmenn? Þurfum við Alþingi? Þurfum við stjórnmálaflokka?      Er hægt að hugsa Ísland án stjórnmálaflokka? Nýtt Ísland þarf beint lýðræði fólksins í landinu, fólkið sem byggir landið.










Greinar
H V Í T B Ó K

www.hvitbok.vg Hvítbók, er vefsíða sem eigendur segja upplýsingasíðu um hel...

W A N T E D

WANTED: Sigurdur Einarsson. Have you seen this person? If so.  Pls. contact nearest Police station. This man is WANTED by the...

Ásta Rut Jónasdóttir í Háskólabíó.

Ásta Rut Jónasdóttir varaformaður Vr og varaþingmaður Framsóknarflokksins með þrumu góða ræðu í Háskólabíó, árið 2009. Ásta er kraftmikil kona sem...

Hvernig getur slík þjóð orðið gjaldþrota ?

...

Stjörnuryk: Hættum að borga